Helst í fréttum
- Árshátið Pragma verður haldin 5. febrúar og er spennan að magnast hjá fólki. “Ég er mest spennt fyrir kosningunni um kennara ársins” segir Stefanía Helga Stefánsdóttir nemandi á 2. ári.
- Mikið hefur verið kvartað yfir þyngd stærðfræðigreiningar I prófsins í ár. Að sögn fyrsta árs nema sem ekki vildi láta nafns síns getið var fallið ,,fyrir neðan allar hellur´´. ,,51% fall er náttúrulega bara djók, við erum komin í þennan skóla og ætlumst bara til að allir falli!´´ Undirskriftarlisti hefur farið af stað undir því yfirskini að Háskólinn í Reykjavík stefni á 100% fall í öllum greinum.
- Þórður Víkingur kennari er miður sín eftir próf í áfanganum ákvarðanatökufræði en þar slæddist inn smávægileg villa. Aðspurður sagði Þórður að hann teldi að skjalið sem innihélt prófið hafi ruglast í flutningum. Flutningarnir voru vandasamir en flytja þurfti skjalið af USB-lykli Þórðar í gegnum gervihnött til alþjóðlegu geimstöðvarinnar og þaðan í lófatölvu Hlyns Stefánssonar kennara. Fréttamaður Sínus spurði Þórð hvernig villan hafi lýst sér en hann segir:,,tjah, sjáðu til félagi, prófblaðið var í raun eins og landafræðipróf fyrir 7. bekk. Það var samt augljóst hvernig átti að túlka þetta.´´
- Heyrst hefur að Páll Guðmundsson, gjaldkeri Pragma, og Rakel Rúnarsdóttir, skemmtinefndarmeðlimur Pragma, hafa tekið “samstarf” sitt á næsta stig. Páll gerir “heimaverkefni” með Rakel á kvöldin. Við hjá Sínus teljum þetta einkum hagkvæmt að þau geti “hjálpað” hvor öðru að “klára” dæmið saman.
- Andri Páll Heiðberg, nemandi í Rekstrarverkfræði á 2. ári, hefur ákveðið að taka þátt í keppninni “Herra Kústur 2009″ sem er haldin í Abu Dhabi í febrúar 2009. “Ég bara ákvað að stökkva á tækifærið” segir Andri ” ég eyddi öllu síðasta sumri í að sópa í Danmörku, þannig að ég veit alveg hvernig kústur virkar!” Það verður gaman að sjá hvort Andri hreppir ekki titilinn.
- Héðinn Þorkellsson, mastersnemi í fjármálaverkfræði, hefur skrifað undir samning við MS um að koma í stað Klóa í kókómjólk fernurnar. “Ég er bara svo miklu sætari” segir Héðinn með bros á vör. Héðinn mun sjást á fernunum í jólaherferð MS… “Kókómjólk - Himnesk fyrir Héðinn”.
- Árni Björn Gestsson, nemandi á 1. ári í Rekstrarverkfræði, hefur verið orðaður við japanska bandí-liðið „slá í kíki“. Njósnarar frá japanska liðinu voru viðstaddir ólympíuleikana fyrr á önninni og tóku þar eftir sláandi hæfileikum Árna í bandí. Árni sagði í viðtali við okkur að hann væri enn að hugsa málið.
- Nanna Kristín Tryggvadóttir, nemi á fyrsta ári í Rekstrarverkfræði, kveðst hafa fengið svar frá geimverum þegar hún skrifaði inn “Halló heimur” í dæmatíma í Tölvunarfræði II. “Ég kynnti mig fyrir þeim og sagði þeim kyn, aldur og hvernig ég er á litinn. En framvegis munu þær tala við mig í gegnum Andrés-blöð”
-Dína María Margeirsdóttir, nemi á 1. ári, hefur ákveðið að selja hæstbjóðanda vinstri höndina sína. “Ég þarf hana ekki lengur” var það eina sem Dína vildi hafa eftir sér og vildi ekki gefa upp verðið. Sinus fréttastofan telur líklegt að kaupandinn noti höndina í leiki sem fullorðið fólk leikur sér í.
-MMMMM Group kaupir MBL!! Morgunblaðshúsið við Kringluna hefur verið keypt af fjárfestingarhópnum “Matlab-Master making Matrix in MBL Group,”í ljósi þess að H.R. hyggst flytja sig upp í Vatnsmýri. Guðrún Sjöfn Axelsdóttir, nemi á 3. ári, segir verðið vera normaldreift um staðalfrávik frá kostnaði við steypugrunn marmarahallar H.R. upp í Vatnsmýri. Þórður Víkingur hefur lýst yfir vonbrigðum sínum, “Hvar á ég núna að klæðast skyrtunni minni stóru?!”
-Atli Sævarsson, nemi á 1. ári í Rekstrarverkfræði, hefur nú haldið því fram að hann sé konan sem haldið var í yfir 20 ár í kjallara í Austurríki af föður sínum og látinn ala honum börn. Lögreglan telur yfirlýsingar Atla mjög ótrúverðugar.
-Addi 16, nemi á 2. ári í Fjármálaverkfræði, heimtar að Te og Kaffi endurgreiði sér það sem um nemur 8 milljónum króna vegna gengislækkana. “Ég veit ekki hver reiknar verðbólguhækkanir hjá þeim en hann er með heila á við sandkorn!”
-Gissur Jónasson, nemi á 3. ári í hátækni, fjármála, rekstrar og allskonarverkfræði, hefur verið ráðinn hjá samkeppnisaðila Mathworks sem gefur út forritið MATLAB til að koma með annað forrit sem þeir munu kalla GISSLAB.
-Sæmundur Kjartan, stærðfræðikennari og atvinnumaður í skíðastökki, hefur lýst því yfir að lokaprófið í stæ 4 hafi alls ekki verið erfitt og skilji ekki af hverju nemendum gekk svona illa. “Ég leysti þetta próf á 8 mínútum og endurtektarprófið verður mun erfiðara!”
-Bergur Dan, nemi á 1. ári, hefur lýst sig gjaldþrota þar sem hann hefur tapað öllum peningum sem hann, fjölskylda hans og nágrannar hans eiga á pókerspilakvöldum sem hann heldur sjálfur. “Það er orðið ljóst að ég kann bara ekkert í póker!”
-Gunnar Steinn Jónsson nemi á fyrsta ári í Rekstrarverkfræði segist vera að gefast upp á hárinu á sér. “Vaxtarhraði hársins míns er 15 sinnum meiri á aftanverðum kollinum en allstaðar annarsstaðar. Ég hef leitað lækninga í öllum heimsálfum og það eina sem virðist virka er að ganga í þröngum gallabuxum. Ég á Dr. Muri Nicksam mikið að þakka, án hans gengi ég ennþá með túrbant”
-Þorlákur Helgi Hilmarsson nemi á öðru ári í fjármálaverkfræði, betur þekktur sem “Þorri” segir LA Galaxy hafi gert stór mistök með því að hafa valið David Beckham fram yfir sig. ”Valið stóð á milli tveggja góðra manna en ég hef lookið, ég hef hæfileikana, ég er einn með öllu. Ég gæti selt mikið af treyjum”
-Nanna Kristín , nemi á 1. ári í rekstrarverkfræði, hyggst bjóða upp á dansnámskeið fyrir hnátur úr lögfræðinni. “Þær sögðust kunna allt í dansi, en þær gerðu sig klárlega að athlægi á Bierfest með vitlausum tangó-móvum” Nanna Kristín hefur klárað 86 tja-tja stig í dansskóla Jóns Baldvins.
-Gunnar Freyr, 3. árs nemi í Fjármó, hyggst segja sig úr mætingarnefnd H.R. og hefur lýst yfir vantrausti á núverandi meðlimi. “Þeir fóru að hnýsast í mína mætingu og tala um slæmt fordæmi af minni hálfu” Gunnar hefur mætt mínus 5 sinnum í skólann í haust og hefur mætingarnefndin nokkuð til síns máls
- Agla Friðjónsdóttir, nemi á 2. ári í Rekstrarverkfræði, hefur kært Sæmund Kjartann stærðfræðikennara fyrir síðustu heimadæmi fyrir að buga geð hennar. “Af hverju kennir Siggi Sveitti okkur ekki bara aftur?? Ég skil ekkert hvað er að gerast!
- Kristján Ari Úlfarsson, nemi á 1. ári í Fjármálaverkfræði, hefur hótað að fleygja sjálfum sér í Reykjavíkurhöfn og hætta námi í HR ef borðtennisborðið verði ekki fjarlægt úr afþreyingaraðstöðu skólans. “Ég læri bara ekkert hérna!!!”
- Fréttir herma að Elvar, nemi á 2. ári í Fjármálaverkfræði, neiti að spila í reglulegu einvígi milli 2. og 3. árs Fjármálaverkfræðinema í knattspyrnu nema að allir menn mæti í varnarbúnaði samkvæmt reglugerð sem hann hefur samið. “Ég er með viðkvæma mjaðmagrind og ætla ekki að hætta lífi mínu þarna!!”
- Una Emilsdóttir, nemi á 1. ári í Heilbrigðisverkfræði, hefur farið fram á að Háskólinn í Reykjavík greiði sér sárabætar og miskabætur upp á 4 milljónir króna fyrir að hafa brákað þriðja hryggjarlið og varanlega fært til vöðvahóp í mjóbaki sökum þess hversu þung Eðlisfræðibókin sé í tösku sinni.
- Kristján Hauksson, nemi á 2. ári í Fjármálaverkfræði, er sagður leigja kústaskáp sem svefnaðstöðu í Kringluhúsnæðinu. “Það tekur því ekki að fara heim ef maður ætlar að massa þetta!”
- Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík opnaði á dögunum Playboy Mansion aðstöðu í Kringluhúsnæði skólans. Um er að ræða sérstakt herbergi þar sem nemendur geta farið til að slaka á og njóta lífsins. Hugh Hefner klippti á borðann við hátíðlega athöfn.
- Lárus Guðjón Lúðvígsson, nemi á 1. ári í Rekstrarverkfræði, hefur verið færður í varðhald fyrir að halda úti vefsíðu með nektarmyndum af sjálfum sér. “Nekt er list!”
- Nýjustu fréttir herma að einn hópanna á 2. ári sé búinn að selja hugmyndina sína fyrir 2 milljónir króna. “Ef þetta er satt skal ég kaupa mér hatt” segir Arnar “Kóngur” Magnússon
-
Sendu okkur þá póst á netfangið sinusfrettir@gmail.com
-
-
Orkuveitan: 4/10 - Skitu soldið á sig. Ekki vel skipulagt og mikill tími fór í ekkert. Vildu þó vel og boðið var á upp á bjór sem er fyrir öllu.
-------------------------------------------------
Landsvirkjun: 7/10 - Fínn matur og allir blindfullir. Almenn stemming nokkuð góð bara.
-------------------------------------------------
Seðlabankinn: 6/10 - Ekki miklu við að búast þar sem ekkert áfengi var í umferð. Fá samt mega prik fyrir að Dabbi sjálfur skyldi tala.
-------------------------------------------------
Ístak: 7/10 - Flottur matur og nóg af áfengi. Ræðuhöld heldur löng en gaurarnir voru frekar nettir!
-
Maí 2007
| Sun |
Mán |
Þri |
Mið |
Fim |
Fös |
Lau |
| « Apríl |
|
Júní » |
| | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 |
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
|
-
- Samtals
- 14,862 gestir
- 44,200 flettingar
Skora á rannskóknarblaðamenn sínussins að komast að því hvernig viðkomandi gekk í þessu prófi.
Ég held að þið ættuð að drullast til að læra sjálfir, í staðin að eyða tíma í að fylgjast með laganemum eins og sveittir skáparúnkarar…..
Konráð Jónsson
Hæ.
Hér var einhver að kommenta undir mínu nafni, án minnar vitundar og samþykkis.
Bæ.
Þetta þotulið í lögfræðinni gerir náttúrlega ekki neitt.
Ég er með áreiðanlegar heimildir fyrir því að einn þeirra sé ekkert í námi hérna heldur sé í raun gangavörður.
Sínusinn orðinn controversial. Fílaða!
Hahaha vá hvað lögfræðikrakkarnir taka þessu eitthvað illa!!Rakst á www.blog.central.is/lexboys, ættu þeir bara að halda sig í kaffipásum sínum í stað þessa að vera blogga. Frekar slappt hjá þeim!
Tja… það getur vel verið að þetta lið læri ekkert en er ég sá eini sem telur það bráðnauðsynlegt að minnast á brjóstin á stelpunni hægra megin. Ég vil fá umræðu um þau.
Hluti af því að vera góður lögfræðingur er að vera góður í kjaftinum. Og ef æfingin skapar meistaran…, þá hef ég ekki miklar áhyggjur af þotuliðinu/sófagenginu.
Stelpan hægra megin, er manneskja ekki e-ð kjötstykki.
Ert þú líka ekki hommi Óli P?
Haha, þetta er dagskráin mín. netið er magnað fyrirbæri, maður getur lesið um daginn sinn á bloggsíðum, vil samt leiðrétta þá villu að ég var ekki kominn fyrr en 13.20 ekki 13.01. En heyrðu stalker, ég var svo fullur á laugardagskvöldið og man ekki neitt, er ekki séns að ég fái að líta í bókina þína og rekja ferðir mínar?
kv, S
PS. Ég náði prófinu :þ
og eitt enn, ef að verkfræðingarnir væru með athyglina í lagi þá er gaurinn með gulu gleraugu, með blá gleraugu núna og búinn að vera með þau í marga mánuði. En maður á kanski ekki að hengja sig í smáatriðum, er slumpreikningur ekki ágætisleið í verkfræði?
kv, S
Rannsóknardeild Sinusar hefur fundið út að Sæþór er maðurinn sem á hér í hlut, vegna fjölda nammipása. Hann er sá eini sem ber þess merki í þotuliðinu.
Góð rannsókn, ég sagði það sjálfur, en vel rannsakað engu síður
kv, S
hahahahahaha… skemmtileg færsla!
…þið útkláið þetta í Vísó á morgun!
[…] Í gær var haldið í vísindaferð til Sjálfstæðisflokksins, þetta var 120 manna ferð fyrir Pragma, Viðskiptaráð og Lögréttu. Það kom mér hressilega á óvart að ræðurnar voru mjög stuttar, Guðfinna fyrverandi rektor og Sigurður Kári sáu um ræðurnar því kom þetta extra mikið á óvart enda Guðfinna ekki þekkt fyrir að vera fáorð. Það var boðið upp á slatta af bjór, rauðu og hvítu þannig að allir fengu eitthvað við sitt hæfi. Ekkert varð af hópslagsmálunum milli verkfræðinnar og lögfræðinnar sem búið var að djóka mikið með. Eftir vísó var haldið niðrí bæ, ég, Gissi og einhver gaur úr viðskiptafræði enduðum á að vera þrír einir í annari 60 manna rútunni sem var skull. Enduðum á því að kíkja á Stælinn niðrí bæ og fá okkur djúsí borgara sem færði mann nokkur skref aftur í drykkjunni. Síðan var haldið á Hverfisbarinn þar sem var nægur bjór í boði Sjálfstæðiflokksins og meiri hlutinn af fólkinu var þar að djamma frameftir. […]
Tilvísun eftir Hansr.net » Blog Archive » xD ? | 6. maí 2007